Hólmur

Hólmur

Hólmur hét áður Grímsbær, sjá hann. Árið 1903 skírðu þeir Jón Guðbrandsson og Guðjón Jónsson, sem þar bjuggu þá, bæinn upp ...
Vestri-Bræðraborg

Vestri-Bræðraborg

Bræðraborg I var byggð árið 1896. Hana byggðu bræðurnir Guðmundur Sæmundsson kennari, sem bjó þar lengi, og Lénharður Sæmundsson söðlasmiður, sem bjó þar fá ár. Til aðgreiningar frá samnefndu húsi þar hjá er þetta hús líka kallað Stærri-Bræðraborg eða Vestri-Bræðraborg ...
Hausthús

Hausthús

Hausthús eru einn af Beinateigsbæjunum. Þau eru byggð árið 1896 af Runólfi Jónassyni frá Magnúsfjósum, en nafnið á bænum höfum vér ekki séð fyrr en í manntali 1940. Þar býr nú Jósteinn Kristjánsson kaupmaður, og hefir hann byggt þar sölubúð ...
Smiðshús

Smiðshús

Smiðshús voru byggð árið 1898 af Guðjóni Björnssyni, síðar í Starfdal. Árið eftir fluttist þangað Magnús Þórðarson, er þar bjó lengi. Smiðshús fóru í eyði fyrir fáum árum, og hefir Gunnar á Vegamótum þar nú smiðju ...
Gímsfjós

Gímsfjós

Grímsfjós voru háleiga frá Stokkseyri, og er þeirra getið fyrst í manntali 1703. Hjáleiga þessi hefir öndverðlega verið byggð á fjósstæði heimajarðarinnar af manni þeim, er Grímur hét og býlið er við kennt. Grímsfjós fylgdu austurparti Stokkseyrar, og hélzt svo allt til þess, er erfingjar Adólfs Petersens á Stokkseyri seldu þau Grími í Nesi um eða eftir 1880. Árið 1885 lét Grímur þau í makaskiptum við Jón Adólfsson í Grímsfjósum ...
Kalastaðir

Kalastaðir

Kalastaðir voru hjáleiga frá Stokkseyri og er getið fyrst í bændatali 1681. Um nafnið er nokkur ágreiningur. Í bændatali 1681, sem er elzta heimildin, er ritað Kalastaðir, í manntali 1703 Kaðalstaðir og í Jarðab. ÁM. 1708 Kaðlastaðir. Í yngri heimildum eru þessi nöfn notuð sitt á hvað, einkum hið fyrstnefnda og hið síðastnefnda. Enginn vafi er á því, að fyrri liðurinn í nafninu er mannsnafn, annaðhvort Kali eða Kaðall (keltn ...
Holt

Holt

Holt kemur fyrst við sögu árið 1508, svo að vitað sé, í sambandi við jarða. kaup. Hinn 30. nóv. það ár keypti Páll Þórðarson jörðina Hróarsholt í Flóa af Stefáni biskupi Jónssyni og galt upp í andvirðið m. a. jarðirnar Tóftir og Holt í Gaulverjabæjarsókn í Flóa, svo sem mælt er í bréfinu, biskupinum og hans eftirkomendum til ævinlegrar eignar og frjáls forræðis ( Ísl. fornbrs. VIII, 253-55). Þeir Páll ...
Ásgautsstaðir 1

Ásgautsstaðir 1

Ásgautsstaða er fyrst getið í Landnámu: „Ölvir hafði landnám allt fyrir útan Grímsá, Stokkseyri ok Ásgautsstaði (Íslendinga sögur I, 220). Ásgautur sá, er bærinn er við kenndur, er hvergi nefndur annars staðar en í bæjarnafninu. En líklegt má telja, að hann hafi verið skjólstæðingur Hásteins landnámsmanns Atlasonar eða sona hans ...
Close Menu