Guðni Jónsson (22. júlí 1901 – 4. mars 1974) var íslenskur sagnfræðingur, doktor í sagnfræði og prófessor við Háskóla Íslands. Guðni fæddist á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, sonur fátækra hjóna sem áttu 17 börn alls. Hann ólst upp í Leirubakka á Landi til tólf ára aldurs, fór þá að vinna og reri seinna tvær vertíðir en tókst svo að brjótast til mennta, gekk í kvöldskóla í Reykjavík, lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg 1921 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1924


