Bjarki Sveinbjörnsson

Leiðólfsstaðir

Saga býlis Leiðólfsstaðir eru kenndir við Leiðólf, er þar byggði fyrstur manna öndverðlega á 10. öld og var leysingi Atla Hásteinssonar í Traðarholti að sögn Landnámu og Flóamanna sögu ( Íslendinga sögur I, 220, sbr. XII, 7).[note] Sumar Landnámugerðir telja hann leysingja Ölvis, bróður Atla. [/note] Eftir það er jarðarinnar ekki getið fyrr en á […]

Leiðólfsstaðir Read More »

Kökkur

Jörð þessi er fyrst nefnd í sambandi við atburði, sem gerðust um 1477 og síra Jón Egilsson segir frá í Biskupaannálum sínum. Óaldarseggir nokkrir, er taldir voru danskir, höfðu vetursetu á Stokkseyri. ,,Einn þeirra átti frillu upp á Kekki, og þann drápu þeir.“ Eftir það unnu þeir ýmis hermdarverk og sigldu síðan óáreittir af landi

Kökkur Read More »

Hólar

Hóla höfum vér fyrst séð getið í áreiðarbréfi milli Gegnishólanna 13. ágúst 1574 og í sams konar bréfi milli Gaulverjabæjar og Gegnishóla sama dag (Alþb. Ísl. I, 257 og 259). Í bréfum þessum koma fyrir mörg örnefni á mörkum þessara jarða. Aftur er Hóla getið í sambandi við Baugsstaðamál, því að annar þeirra bænda, er

Hólar Read More »

Efra-Sel

Efra-Sel er hálflenda hinnar fornu jarðar Sels, sjá það. Í bændatali 1681 er hálflendu þessarar fyrst getið, og nefnist hún þar Sel efra, en jafnan síðan Efra-Sel. Stokkseyrarkirkja var eigandi jarðarinnar allrar frá því á 15. öld og allt fram yfir síðustu aldamót, og var eigendum Stokkseyrar, sem jafnframt voru kirkjubændur, goldin landskuld og leigur

Efra-Sel Read More »

Brautartunga

Brautartunga er hálflenda hinnar fornu jarðar Kakkar, eftir að Kakkarhjáleiga hafði verið byggð úr jörðinni, sjá Kökk. Hálflendu þessarar er fyrst getið með nafni í manntali 1703 og nefndist þá og lengi síðan Syðri-Kökkur, en seint á 18. öld og eftir það jafnan Syðsti-Kökkur. Árið 1930 var jörðin skírð upp með leyfi stjórnarvalda og heitir

Brautartunga Read More »

Brattsholt

Saga býlis Brattsholt var byggt á landnámsöld og er kennt við Bratt, leysingja Atla Hásteinssonar í Traðarholti, er þá land af Atla og byggði þar fyrstur manna. ( Íslendinga sögur I, 220, sbr. XII, 7). Eftir það finnst Brattsholts ekki getið fyrr en á 16. öld í sambandi við jarðakaup. [note] Sumar Landnámugerðir telja hann

Brattsholt Read More »

Baugsstaðir

Baugsstaðir eru elzta byggt ból í Stokkseyrarhreppi og kenndir við Baug Rauðsson, fóstbróður Ketils hængs, er hafði þar aðsetur hinn fyrsta vetur, er hann var á Íslandi um 890. Um Baug segir svo í Landnámu: ,,Hann fór til Íslands ok var inn fyrsta vetr á Baugsstöðum, en annan með Hængi. Hann nam Fljótshlíð alla at

Baugsstaðir Read More »