Eystra–Íragerði

Eystra–Íragerði

Eystra-Íragerði var hjáleiga frá Stokkseyri, og er hennar getið fyrst með nafni sem sérstaks býlis í manntali 1703 (Austara-Íragerði). Að öðru leyti vísast til þess, sem segir um Íragerði. Hjáleiga þessi hefir ævinlega fylgt Stokkseyrareigninni og er nú síðan 1935 eign ríkissjóðs ásamt henni.

Þess er vert að geta, að sama ættin bjó í Eystra-Íragerði frá því fyrir eða um 1746-1896 eða í hálfa aðra öld samfleytt. Höfum vér nefnt hana Íragerðisætt, og hefst hún með Vigfúsi Pálssyni.

Leave a Reply

Close Menu