Ísólfur Pálsson

Árið 2011 voru liðin 70 ár frá andláti Ísólfs Pálssonar tónskálds frá Stokkseyri. Í fórum afkomenda hans lágu fjöldi handrita af tónsmíðum Ísólfs svo og ýmsum skrifum hans sem fæst hafa verið birt áður. Meðal gagna þar voru tæp 200 tónsmíðar með eigin hendi og fjöldi þeirra í útsetningu sonar hans, Páls Ísólfssonar. Er því hér um mikinn fjársjóð að ræða sem fyrst kemur fyrir augu almennings nú, öll komin úr höfundarrétti.

Afkomendur Ísólfs beittu sér fyrir því að hægt væri að tölvusetja allar tónsmíðarnar og var sú vinna unnin af Gylfa Garðarssyni auk þess að gera hljóðskrár af einstökum lögum. Um nákvæman yfirlestur handrita og nótnasetningar sá Smári Ólason og Gunnlaugur Snævarr las allan kveðskap sem í tónsmíðunum birtist. Þá vann Smári Ólason nákvæma greinagerð um verkefnið sem birtist hér.

Hér má skoða og hlýða á, í stafrænni hljóðgerð úr nótunum öll lögin hvert um sig, en einnig hefur Gylfi mótað öll lögin í bók sem hér birtist sem eitt skjal.

Verkefnið
Árið 2011 voru liðin 70 ár frá andláti Ísólfs Pálssonar tónskálds frá Stokkseyri. Í fórum afkomenda hans lágu fjöldi handrita …
Ísólfur Pálsson tónskáld
Þann 11. mars ssl. [1971] voru 100 ár liðin frá fæðingu Ísólfs Pálssonar organista og tónskálds, en hann fæddist á …
Um verkefnið
Árið 2011 voru liðin 70 ár frá andláti Ísólfs Pálssonar tónskálds frá Stokkseyri. Í fórum afkomenda hans lágu fjöldi handrita …
001-Ísólfur Pálsson tónskáld
Þann 11. mars ssl. [1971] voru 100 ár liðin frá fæðingu Ísólfs Pálssonar organista og tónskálds, en hann fæddist á …