You are currently viewing Bjarmaland

Bjarmaland

Bjarmaland er byggt árið 1895 af Jóni Vigfússyni verzlunarmanni hjá Ólafi Árnasyni. Jón fór til Ameríku 1899 og seldi húsið þá Guðmundi kennara Vernharðssyni, sem bjó í því til dauðadags 1901. Eftir það var hús þetta lengi vörugeymsluhús Jóns kaupmanns Jónassonar, en síðan var það tekið til íbúðar aftur. Nafnið Bjarmaland kemur fyrst fyrir árið 1932, og bjó þar þá Guðjón Jónsson, áður bóndi á Leiðólfsstöðum.

Leave a Reply