Á síðustu áratugum hafa orðið til nokkrar félagsverzlanir á Stokkseyri. Er vér hér köllum þær nýjar, þá má ekki taka það of bókstaflega, þar sem hinar elztu þeirra eru komnar hátt á þriðja tuginn, heldur er það til aðgreiningar frá hinum gömlu félögum samkynja, sem löngu eru undir lok liðin,.svo sem Stokkseyrarfélaginu og kaupfélaginu Ingólfi. En stefnumiðið er hið sama: betri og hagkvæmari viðskipti en menn telja sig geta náð á annan veg.