Sigurgrímur Jónsson

Sigurgrímur Jónsson f. 5.6.1896 að Holti. Búfræðingur frá Hvanneyri 1915 Kennari Stokkseyrarhreppi 1915-17 og 1921-22. Bóndi í Holti 1921-73, í hreppsnefnd 1928-58. Oddviti 1934 -38 og aftur 1946-58. Stjórn Mjólkurbús Flóamanna 1929-72. Varamaður í stjórn Mjólkursamsölunnar 1935-60 – í aðalstjórn frá ársbyrjun 1961-72. Sat sem varamaður á Búnaðarþingi 3 ár. Fulltrúi á aðalfundum Stéttarsambands bænda, Sambands Ísl. Samvinnufélaga og Sláturfélags Suðurlands í nokkur ár. Mörg ár á aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands.

Í stjórn Hraðfrystihúss Stokkseyrar öðru hvoru 1948-75. Lengi í skattanefnd. Fasteignamatsnefnd Árnessýslu 1938-42 þá formaður nefndarinnar og aftur í sömu nefnd 1965-72. Fleiri matsstörf af ýmsu tagi. Í sáttanefnd um árabil. Umboðsmaður Brunbótafélags Íslands 1936 og síðan. Var 6 vetrarvertíðir á sjó. Í Þorlákshöfn, Sandgerði, Stokkseyri og kom nokkuð við sögu í útgerð, bæði fyrir sjálfan sig og aðra – einkum Stokkseyrarhrepp. Var lengi í stjórn búnaðarfélags hreppsins. Tvö ár formaður Héraðsambandsins Skarphéðins.

Kvæntur 25. júni 1921 Unni Jónsdóttur frá Jarlsstöðum í Bárðardal. Unnur var 4 vetur í Kvennaskólanum í Reykjavík, kenndi síðan við barnaskólann á Siglufirði 1915-18 og í Gaulverjabæ 1918-21. Hún andaðist 3. apríl 1973.

Þeim hjónum varð 9 barna auðið og eru 5 þeirra búsett í heimasveit. Upptaling aukaverkanna sýna hvað lagt var á konuna og börnin – húsbóndi langtímum að heiman.

Sigurgrímur gaf sér tíma til ýmissa skrifa um fjölda málaefna. Sum þeirra birtust í tímaritum, en önnur hér á þessari síðu.

    • Gögn og upplýsingar um Sigurgrím Jónsson