Eiríkshús var kennt við Eirík Jónsson trésmið frá Ási í Holtum, er byggði það árið 1898 og bjó þar, unz hann fluttist til Reykjavíkur árið 1903. Seldi hann húsið þá þeim Daníel Arnbjörnssyni og Eyjólfi Sigurðssyni, og skírðu þeir það Björgvin, sjá þar.