Sólbakki
Sólbakki hét áður Ívarshús, sjá þar, en Karl Fr. Magnússon skírði húsið upp árið 1915. Árið eftir fluttist Karl að Hafsteini, og bjó þar síðan.
Sólbakki hét áður Ívarshús, sjá þar, en Karl Fr. Magnússon skírði húsið upp árið 1915. Árið eftir fluttist Karl að Hafsteini, og bjó þar síðan.
Slóra var einsetukot karls eða kerlingar og stóð í Stokkseyrartúni, þar sem nú er Bjarnahús. Enginn veit hvenær kot þetta var í byggð. (Sögn Bjarna Júníussonar).
Skálavík er nefnd fyrst árið 1918. Það hús byggðu systkinin Magnús Gunnarsson kaupmaður, áður bóndi í Brú, og Þuríður Gunnarsdóttir, ekkja Páls Þórðarsonar í Brattsholti, og bjuggu þar til dauðadags
Skálafell nefnist símstöðvarhúsið á Stokkseyri, og kemur nafnið fyrst fyrir 1943. Húsið byggði Axel Þórðarson símstjóri, fyrr kennari á Stokkseyri. Hann fluttist til Reykjavíkur 1953.
Sjólyst var byggð árið 1902 af þeim Þórði Björnssyni frá Móeiðarhvolshjáleigu, er fluttist til Reykjavíkur 1927, og Sigurði Magnússyni, síðar í Dvergasteinum.
Sjóbúð II var bær gegnt Kirkjubólil, sem byggður var upp úr sjóbúð handa Guðmundi Jónssyni danska og Láru Sveinbjörnsdóttur konu hans. Bærinn var stundum kenndur við hana og kallaður Lárubúð,…
Sigurðarhús er kennt við Sigurð Einarsson verzlunarmann á Stokkseyri, er þar bjó lengi. Húsið er byggt árið 1899 af Eiríki Jónssyni trésmið frá Ási í Holtum, en Jón Adólfsson kaupmaður…
Setberg er byggt 1920 af Guðmundi Ólafssyni úr Holtum. Hann fluttist til Reykjavíkur og dó þar.
Góðtemplarahús var reist fyrir aldamót. Það stóð fyrir framan Vinaminni og gaf Grímur í Nesi lóð undir það. Verkalýðsfélag Stokkseyrar keypti síðan húsið og flutti það þangað, sem það er…
Þurrabúðir voru þeir bólstaðir nefndir, sem enginn málnytupeningur fylgdi, og liggur það í orðinu sjálfu, en þurrabúðarmenn voru þeir kallaðir, er þannig bjuggu. Eru þessi orð löghefðuð nú á dögum…