Skipagerði
Þess skal að lokum getið, að á vegum Byggingarfélags verkamanna eru tvö ný steinhús risin af grunni í Stokkseyrarhverfi. Annað þeirra er hjá Skipagerði, byggt 1950, og býr þar nú…
Þess skal að lokum getið, að á vegum Byggingarfélags verkamanna eru tvö ný steinhús risin af grunni í Stokkseyrarhverfi. Annað þeirra er hjá Skipagerði, byggt 1950, og býr þar nú…
Ölhóll í sveitarbók Stokkseyrarhrepps 1873-74 er sama býli sem Útgarðar, sjá þar.
Þóruhús er aðeins nefnt í manntali 1703. Á árunum 1681-1703 bjó þar Þórunn Jónsdóttir ekkja með syni sínum, Jóni Eyjólfssyni, síðast bónda á Syðsta-Kekki.
Þingdalur er nefndur fyrst sem íbúðarhús árið 1907, og bjó Edvald Möller verzlunarmaður þar í fáein ár. Hús þetta var í rauninni skúr eða útbygging, áföst við Ólafshús, er síðar…
Vinaminni er byggt árið 1898 af Jóni Sturlaugssyni, síðar hafnsögumanni, og bjó hann þar til dauðadags 1938. Nafnið er svo til komið, að Jón bauð nokkrum kunningjum til sín, þá…
Vegamót eru byggð árið 1906 af Gunnari Gunnarssyni frá Byggðarhorni, og hefir hann búið þar síðan.
Vatnsdalur er sama býli sem hét áður Tjarnir, sjá þar. Guðmundur Pálsson, er þar bjó, breytti um nafn á því árið 1905.
Varmidalur hét áður Aftanköld, sjá þar, og breytti Einar Ólafsson nafninu árið 1900. Varmidalur brann í Stokkseyrarbrunanum mikla árið 1926, og var íbúðarhúsið, sem nú er, byggt eftir brunann.
Útgarðar eru byggðir árið 1870 af Guðnýju Kjartansdóttur, ekkju Einars Loftssonar í Ranakoti, en nafnið kemur fyrst fyrir við húsvitjun 1874. Fyrst er býli Guðnýjar kallað Móhúsahjáleiga (manntal og húsvitjun…
Unhóll er byggður árið 1898 af Jóni Benediktssyni frá Unhól í Þykkvabæ, og gerði hann sér fyrst bæ þar, sem verið hafði sjóbúð Jóns Guðmundssonar á Gamla-Hrauni. Árið 1901 kom…